Lag númer þrjú á plötu númer tvö, á disknum “Dans Gleðinnar“
Lag: Jónas Jónasson
Texti: Kristján frá Djúpalæk
Kvöldið er okkar og vor um Vaglaskóg.
Við skulum tjalda í grænum berjamó.
Leiddu mig vinur í lundinn frá í gær,
lindin þar niðar og birkihríslan grær.
Leikur í ljósum
lokkum og angandi rósum,
leikur í ljósum
lokkum hinn fagnandi blær.
Daggperlur glitra, um dalinn færist ró.
Draumar þess rætast, sem gistir Vaglaskóg.
Kveldrauðu skini á krækilyngið slær,
kyrrðin er friðandi, mild og angurvær
leikur